SkotKóp
Mót og úrslit
Mótaskrár – Úrslit móta – Íslandsmet – Félagsmet
Mótareglur – Skráning í mót
Mótareglur og ýmis met
Þrístaða 3×40
Liðakeppni kvenna: SFK -Vestfj.mót Ísafirði 25.mars 2018 (Bára Einarsdóttir 1,034, Guðrún Hafberg 974, Margrét L. Alfreðsdóttir 884) = 2,892 stig
50 metra liggjandi riffill (prone) FR60PR
Karlar : Jón Þór Sigurðsson SFK – Aarhus Open, Danmörk 27.jan 2024 = 628,5 stig
Karlar final: Jón Þór Sigurðsson SFK – Smáþjóðaleikar í Reykjavík 4. jún.2015 = 203,5 stig
Liðakeppni karla: SFK – Íslandsmót STÍ í Kópavogi 26.apríl.2015 = 1.836,9 stig (Arnfinnur A.Jónsson 608,8, Jón Þ.Sigurðsson 622,2, og Stefán E.Jónsson 605,9)
Liðakeppni kvenna: SFK – Vestfj.mót Ísafirði 24.mars 2018, (Bára Einarsdóttir 617,8, Guðrún Hafberg 596,1 , Margrét Alfreðsdóttir 598,0) = 1811,9 stig
BR50 riffill .22
Heavy Varming Unglingar: Hólmgeir Örn Jónsson SFK – Íslandsmót á Akureyri 16.-17.júlí 2022 = 720-22x stig
300m Frjáls riffill FR300
Jón Þór Sigurðsson, SFK – European Cup, Sviss 23.júní 2023 = 596/34x stig
Lið: SFK Íslandsmót STÍ í Höfnum 28. júlí 2018 (Jón Þór Sigurðsson 564, Arnfinnur Jónsson 562, Eiríkur Björnsson 539 = 1665 stig.
Gróf skammbyssa
Karlar : Ívar Ragnarsson SFK – Landsmót í Kópavogi 24.okt 2021 = 570 stig
LIÐAMET: SFK – 24.okt.2021 – 1,680 stig (Jón Þór Sigurðsson 557, Ívar Ragnarsson 570, Friðrik Þ. Goethe 553)
Loftskammbyssa AP60
Unglingar drengir final: Adam Ingi Höybye Franksson SFK, Íslandsmeistaramót í Reykjavík 13.apr 2024 = 185,2
Liðakeppni karlar: SFK – Landsmót Kópavogi 18. október 1993 ( Hannes Tómasson 560,Jónas Hafsteinsson SFK 566, Ólafur Jakobsson SFK 573 )=1699 stig
Sport Skammbyssa SP
Karlar: Ívar Ragnarsson SFK – Landsmót í Kópavogi 23.okt. 2021 = 571 stig
LIÐAMET karla: SFK – 23.okt.2021 – 1,687 stig (Jón Þ.Sigurðsson 568, Ívar Ragnarsson 571, Friðrik Þ. Goethe 548)
Stöðluð Skammbyssa STP
LIÐ: SFK – Landsmót í Egilshöll 8.des.2019,(Ívar Ragnarsson 559 , Jón Þór Sigurðsson 541 og Friðrik Þór Goethe 532) Alls 1632 stig
Skráning í landsmót þarf að berast félaginu í síðasta lagi fyrir kl.20, sunnudeginum fyrir mótshelgi.
Skotíþróttafélag Kópavogs er alltaf vinna að því að styðja betur við keppnisfólkið okkar og höfum opnað fyrir umsóknir í Keppnissjóð félagsins.
Enn er unnið að rammanum utan um þessa styrki svo það er ekki hægt að birta forsendur styrkþega strax en við munum birta það samhliða upplýsingum um úthluðaða styrki.
Umsóknir fyrir styrki út næsta keppnistímabil (2023-2024) þurfa að berast í síðasta lagi 1. júlí 2023 og verða veittir styrkir birtir fyrir 1. ágúst.
Til þess að sækja um styrk þarf að fylla út formið hér
Skrá mig á mót
Lög og reglur félagsins
- Þegar komið er að eða farið frá skotvelli / skotsvæði, ber að hafa byssu í tösku.
- Heimilt er að fara með byssu óvarða milli skotstæðis og byssugeymslu en þá skal vera öryggisspotti í hlaupi byssunnar.
- Skotmanni er skylt að hafa byssuna opna og meðhöndla hana eins og hún sé hlaðin.
- Aðeins er heimilt að skjóta í viðurkennda skotstefnu og á viðurkennd skotmörk.
- Aðeins æfingastjóri heimilar skotmanni að taka sér stöðu með byssu hlaðna og skjóta.
- Þegar gengið er frá byssu á skotstæði skal byssan vera opin með öryggisspotta í hlaupi.
- Þegar skotmark er skoðað skal kveikja á viðvörunar-/öryggisljósum.
- Þegar skoða þarf skotmark skal byssa vera opin og með öryggisspota í gegnum hlaupið. Allir aðrir en þeir sem skoða skotmarkið standa fyrir aftan rauðu öryggislínuna. Á þeim tíma má enginn meðhöndla byssu.
- Skotmaður sem þarf að mehöndla byssu á einhvern hátt, skal fá leyfi æfingastjóra, mótsstjóra, dómara o.s.frv. Þá skal öryggisspotti vera í hlaupi byssu. Undantekning frá þeirri reglu er þegar verið er að þrífa hlaup.
- Lágmarks skotfjarlægð í púðursal er 25 metrar og 10 metrar í loftsal. Ekki má skjóta á styttri vegalengdum en þessum.
- Í loftsal er heimilt að nota:
- Keppnisloftbyssur með hlaupvídd 4.5mm/.177
- Hámark leyfilegs afsl loftbyssu / loftriffils er 7.5 kilo/joule.
Veiðiloftrifflar og skammbyssur skulu notaðar í púðursal.
- Í púðursal er heimilt að nota:
- .22lr skot í riffla og skammbyssur. High Velocity skot eru ekki leyfileg.
- 7.62mm – 9.65mm (.38 cal.) er hámarks hlaupvídd í gróf skammbyssu.
High Power og Magnum skot eru ekki leyfileg.
- Æfingastjóri stjórnar skotæfingum og ber ábyrgð á að reglum þessum sé framfylgt.
- Skotamnni er skylt að hlýða settum æfingastjóra.
- Brot á þessum reglum geta varðað brottrekstri úr félaginu.
Grein 1.
Nafn félagsins er Skotíþróttafélag Kópavogs, skammstafað SFK, og er heimili þess og varnarþing í Kópavogi.
Grein 2.
Tilgangur félagsins er að efla almennan áhuga á skotfimi, auka þekkingu á byssum og meðferð þeirra, m.a. með því að vinna að bættri aðstöðu til skotæfinga.
Félagið er málsvari þeirra sem stunda skotæfingar og skotíþróttir.
Grein 3.
Félagsmenn geta þeir orðið:
- Sem eru íslenskir ríkisborgarar.
- Hafa leyfi lögráðamanns ef umsækjandi er undir 18 ára aldurs.
- Aukafélagar geta þeir erlendir ríkisborgarar orðið sem stjórnin samþykkir.
- Stjórnin getur hafnað umsóknum um félagsaðild ef það er samdóma álit hennar að hætta sé á að umsækjandi geti valdið félaginu og markmiðum þess tjóni.
Grein 4.
Félagsmenn skulu greiða árgjald til félagsins og skal sú upphæð ákveðin á aðalfundi.
Gjalddagi árgjalds skal vera 10. febrúar og greiðslu seðlar sendir út um miðjan janúar.
Gildir árgjald frá 1. Janúar til 31. Desember ár hvert.
Auk árgjalds skal hver félagsmaður greiða inntökugjald sem ákveðið skal á aðalfundi og skal inntökugjaldið greitt um leið og inntökubeiðni er lögð fram, en endurgreidd ef beiðni er synjað.
Skuldi félagsmaður árgjald lengur en eitt ár, telst hann ekki lengur fullgildur félagi og nýtur ekki réttinda sem slíkur.
Hafi félagsmaður verið langdvölum utan félagssvæðis er stjórninni heimilt að fella niður árgjald hans, einnig eru þeir félagar sem dveljast langdvölum erlendis undanþegnir félagsgjaldi en eru samt fullgildir félagsmenn.
Grein 5.
Enginn félagsmaður á tilkall til hluta af eignum félagsins, þótt hann hverfi úr félaginu eða félaginu verði slitið.
Enginn félagsmaður ber ábyrgð á skuldbindingum félagsins með öðru en gjöldum sínum. Komi til þess að félaginu verði slitið skulu eignir þess renna til UMSK.
Grein 6.
Reikningsár félagsins er almanaksárið.
Grein 7.
Félagið starfar samkvæmt reglum ISSF og STÍ og annarra viðurkenndra alþjóðasambanda.
Stjórn getur þó sett sérstakar reglur um innanfélagsmót.
Grein 8.
Stjórn er heimilt að veita viðurkenningar fyrir störf í þágu félagsins, eða íþróttaafrek unnum á vegum þess.
Um viðurkenningar og heiðursfélaga skal setja reglugerð sem samþykkja skal á aðalfundi.
Grein 9.
Stjórn félagsins skal skipa fimm menn; formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi.
Í varastjórn skal kjósa tvo menn.
Hver maður í stjórn og varastjórn skal kosinn sérstaklega til eins árs í senn.
Stjórnin hefur á hendi allar framkvæmdir félagsins á milli aðalfunda.
Grein 10.
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins og stefnt skal að því að halda aðalfund seinni partinn í febrúar.
Aðalfund í félaginu skal halda ár hvert.
Til almennra félagsfunda skal boða þegar þörf þykir að dómi meirihluta stjórnar, eða þegar minnst 25 félagsmenn óska þess skriflega og tilgreina fundarefni.
Aðalfund skal boða með a.m.k. mánaðar fyrirvara á heimasíðu félagsins www.skotkop.is ásamt fjöldapósti á félagsmenn með skráð tölvupóstfang og með auglýsingu í a.m.k. tveimur dagblöðum.
Stjórn skal halda félagsfund ekki síðar en 15 dögum frá því að henni barst um það beiðni skv. 3. Mgr..
Grein 11.
Tillögur til lagabreytinga skal afhenda stjórn félagsins tveimur dögum fyrir aðalfund félagsins.
Lögum þess verður aðeins breitt með samþykki 2/3 greiddra atkvæða á aðalfundi.
Grein 12.
Á aðalfundi skal stjórn félagsins gefa skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu starfsári og leggja fram endurskoðaða reikninga félagsins, og skulu þeir hafa legið frammi til athugunar á þeim stað sem stjórnin ákveður í eina viku fyrir aðalfund.
Grein 13.
Þessi eru störf aðalfundar:
- Fundarsetning.
- Fundarstjóri kosinn.
- Skýrsla stjórnar.
- Fundarritari kosinn.
- Nefndir gera grein fyrir störfum sínum.
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
- Lagabreytingar.
- Stjórnarkosning, sbr. 9. Grein.
- Nefndarkosningar.
- Kosning þriggja manna aganefndar.
- Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara.
- Kjör fulltrúa á þing UMSK og STÍ og jafn marga til vara.
- Ákvörðun árgjalds og inntökugjalds.
- Önnur mál.
- Fundargerð lesin
- Fundarslit.
Grein 14.
Stjórn félagsins skal setja reglur um æfingartíma, ásamt sérstökum reglum um öryggi og umgengni á æfingarsvæðum félagsins og ef félagsmönnum skylt að hlíta þeim.
Um viðurlög við brotum samkvæmt 1. Mgr. Vísast til laga ÍSÍ.
Stjórn félagsins eða félagsfundi er heimilt að víkja mönnum úr félaginu eftir ítrekuð brot skv. 1. mgr. og ræður þar meirihluti atkvæða.
Brottrekinn félagsmaður getur áfrýjað slíkri ákvörðun til aðalfundar.
Á sama hátt má víkja félagsmanni úr félaginu sem með framkomu sinni hnekkir áliti félagsins og skaðar málstað skotíþrótta.
Grein 15.
Félaginu verður ekki slitið nema á aðalfundi og þá með samþykki meirihluta allra félagsmanna.
Grein 16.
Stjórn félagsins skal skila STÍ skýrslum um innanfélagsmót, sbr. lög og reglur UMSK.
Grein 17.
Að öðru leyti vísast til laga ÍSÍ og UMSK.
Það er gott að skjóta í Kópavogi
Ef þig hefur einhverntíman dreymt um að skjóta af skotvopni, en vissir ekki hvernig þú ættir að bera þig að – þá er er um að gera að koma og prófa.