Góður árangur á Landsmóti STÍ í loftgreinum 2026

Landsmóti STÍ í loftgreinum 2026 lauk fyrr í dag, en mótið fór fram í Keflavík í aðstöðu Skotdeildar Keflavíkur.

Liðsmenn Skotíþróttafélags Kópavogs stóðu sig með mikilli prýði í loftskammbyssunni, Bjarki Sigfússon landaði öðru sæti með 545 stig og Maria Lagou tók þriðja sætið með 533 stig, en Jórunn Harðardóttir í SR var hlutskörpust með 547 stig. Auk verðlaunasætanna var Hjörleifur Hilmarsson fjórði með 532, Adam Ingi Höybye Franksson fimmti með 530 stig, og Jóhann Jónsson sjöundi með 524 stig. Elís Hugi Dagsson náði líka frábærum árangri í flokki SH1-P1, þar sem hann skaut 538 stig.

A-lið Skotíþróttafélag Kópavogs tók auk þess 1. sætið með 1608 stig (Bjarki, Maria og Adam),  og B-lið Kópavogs var þar að auki í 3. sæti með 1555 stig (Hjörleifur, Jóhann Jóns og Tatjana). Skotdeild Keflavíkur var í 2. sæti með 1561 stig.

Þökkum Skotdeild Keflavíkur fyrir frábært mót, og minnum á að við verðum með mót í Digranesi 18. apríl

Myndir með góðfúslegu leyfi Skotdeildar Keflavíkur