Jón Þór Sigurðsson úr Skotíþróttafélagi Kópavogs var nýlega kosinn íþróttakarl ársins 2025 hjá héraðssambandinu UMSK (Ungmennasamband Kjalarnesþings) og hlaut farandbikar og viðurkenningu héraðssambandsins vegna þessa á ársþingi sambandsins þann 26. mars.
Jón Þór átti ótrúlegt keppnisár 2025 og skipaði sér á meðal fremstu skotíþróttamanna heims. Jón Þór varð Evrópumeistari í 300 metra liggjandi riffli á EM í Chateauroux í Frakklandi og bætti þar eigið Íslandsmet, hreppti bronsverðlaun á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi, auk þess að ná í gull á Evrópubikarmóti í sömu grein. Hann tryggði sér einnig gull á Smáþjóðaleikunum í Andorra í loftskammbyssu. Þetta eru afrek sem teljast einstök á alþjóðavettvangi fyrir íslenskan keppanda.
