Landsmót SFK í loftskammbyssu fór fram í dag, laugardaginn 18. apríl. Mótið var mjög vel sótt og alls voru 29 keppendur skráðir til leiks.
Eftir riðlana voru Bjarki Sigfússon úr SFK með 545 stig (9x), Jórunn Harðardóttir úr SR með 544 stig (7x), og Adam Ingi Hoybye Franksson úr SFK með 540 (11x) efst, en skammt þar undan voru Maria Lagou og Elís Hugi Dagsson úr SFK, og því ljóst að það stefndi í spennandi final.
Þar reyndist Adam Ingi Hoeby Franksson úr Skotfélagi Kópavogs hlutskarpastur, en í öðru sæti var Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir úr Skotfélagi Snæfellsnes með 218 stig, og í þriðja sæti var Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 198.3 stig.
Þar á eftir komu Maria Lagou, Bjarki Sigfússon, Laura Sofia Valero Vargas öll úr SFK.
Í liðakeppninni var A-lið Skotfélags Kópavogs í fyrsta sæti, í öðru sæti var A-lið Skotdeild Keflavíkur og í því þriðja B-lið Skotfélags Kópavogs.
Auk þessara kappa tóku fjölmargir keppendur SFK og annarra félaga þátt í sínu fyrsta móti, og því er framtíðin björt í þessari grein.
Myndir frá mótinu munu birtast á facebook síðu félagsins á næstu dögum.