
Íslandsmótið í loftskammbyssu fór fram í Egilshöll í dag 2. maí.
Keppendur frá Skotíþróttafélagi Kópavogs stóðu sig með mikilli prýði, og áttum við helming keppenda í final í bæði kvenna og karlaflokki!
Sigurvegari í karlaflokki eftir æsispennandi final var Adam Ingi Höybye Franksson með 225.9 stig eftir harða baráttu við Bjarka Sigfússon sem var með 217 stig, en þeir eru báðir í Skotíþróttafélagi Kópavogs. Þriðji var síðan Bjarni Sigurðsson úr Skotdeild Keflavíkur. Hjörleifur Hilmarsson og Jóhann Jónsson úr SFK voru síðan í 4. og 5. sæti.
Í kvennaflokki eftir final var Maria Lagou önnur og þriðja var Tatjana Jatsuk, báðar úr Skotíþróttafélagi Kópavogs, en sigurvegarinn þar var Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir úr Skotfélagi Snæfellsnes. Laura Sofia Valero Vargas úr SFK var síðan í fimmta sæti.
Elís Hugi Dagsson úr SFK stóð sig einnig mjög vel í flokki hreyfihamlaðra, þar sem hann skaut 515 stig.
Í liðakeppninni voru síðan a lið SFK í öðru sæti, og b liðið í því þriðja, eftir harða baráttu við a lið Skotfélags Reykjavíkur þar sem einungis munaði 1 stigi á fyrsta og öðru sæti.
Auk þessa tóku SFK liðarnir Tatjana Jastsuk gull í öðrum flokki, Jóhann Jónsson gull í þriðja flokki, Hjörleifur Hilmarsson silfur í öðrum flokki, Jóhanna Berentsdóttir silfur i þriðja flokki, Reynir Örn Jóhannesson silfur utan flokka og Rósey Reynisdóttir brons í þriðja flokki
Þökkum Skotfélagi Reykjavíkur fyrir gott mót!