BR 50 Íslandsmót
Um síðustu helgi, 16 – 17 júlí var haldið Íslandsmót í BR 50 á Akureyri, fjöldi þátttakanda var um 20 keppendur, keppt var í þremur greinum,, Heavy Varmint, Light Varmint,, og Sporter,,
Hólmgeir Örn Jónsson SFK (2006) setti Íslandsmet í Heavy Varmint unglingaflokki, hann er sennilega fyrsti unglingur sem keppir í þessari grein á Íslandi.
Bjarni Valsson SFK varð í þriðja sæti í Sporter flokk.
Jón Ingi Kristjánsson SFK varð í fimmta sæti í Heavy Varmint, Jóni gekk ekki vel á fyrsta blaði, en skaut svo samkvæmt vana á hin blöðin skor sem hefði sett hann í verðlauna sæti.
SFK óskar þeim öllum til hamingju.


