Riðlar fyrir mót í loftgreinum

Búið er að stilla upp í riðla fyrir Landsmótin sem haldin verða hjá okkur næstu helgi í loftskammbyssu á laugardegi og loftriffli á sunnudegi.

Við minnum keppendur á að þegar rástími er merktur t.d. klukkan 09:00 þá má taka sér stöðu á braut 30 mínútum fyrr, eða 08:30

Mótið verður haldið í stóra salnum í Digranesi og eiga keppendur að koma inn um aðal inngang íþróttahússins en áhorfendur um innganginn sem er fyrir ofan hús.

Mótsæfing fyrir loftskammbyssu verður á föstudeginum frá 19:00-21:00 en mótsæfing í riffli verður í framhaldi af úrslitum loftskammbyssu eða frá 17:00-18:00 á laugardeginum.

Sjáumst í Digranesi!

Riðlar fyrir Loftskammbyssu 18.apríl 2026

Riðlar fyrir Loftriffil 19. apríl 2026