Grand Prix Novi Sad WSPS

Hann Þór Þórhallsson fór á dögunum til Novi Sad í Serbíu og keppti þar í Loftriffil í flokki SH2.

Á mótinu voru 40 keppendur skráðir og 34 sem skutu – en hann Þór endaði í 17 sæti á mótinu með 625,8 stig sem er frábær árangur.

Þetta er annað mótið sem hann keppir í á erlendri grundu og hefur hann bætt sig mikið á milli móta.

Vel gert Þór!