Innanfélagsmót í staðlaðri skammbyssu, 30 skot, fór fram á mánudaginn. Þátttaka var frábær, 16 skotmenn og þar af 6 manns sem aldrei hafa tekið þátt í viðlíka skotmóti áður. Það var afar ánægjulegt, enda mikilvægt að fá nýliða til að prufa að taka þátt í mótum sem þessum. Niðurstöður mótsins voru:
- 1. Ívar – 274 stig.
- 2. Jón Þór – 267 stig.
- 3. Friðrik – 263 stig.
- 4. Sigurgeir – 254 stig.
- 5. Þórir – 242 stig.
- 6. Bjarki – 241 stig.
- 7. Karl E. – 217 stig. (3 x-ur)
- 8. Hannes – 217 stig
- 9. Mörður – 217 stig.
- 10. Hafsteinn – 192 stig.
- 11. Atli – 182 stig.
- 12. Þorgils – 147 stig.
- 13. Hafdís – 137 stig.
- 14. Þröstur – 109 stig.
- 15. Pétur – 88 stig.
- 16. Hafþór – 75 stig.