Mótahald og skráningar

Opnað hefur verið fyrir skráningar á þau STÍ mót sem haldin eru fyrir áramót á vefnum okkar og hvetjum við alla til þess að skrá sig.

Einnig erum við að reyna að efla innanhúss mótastarf félagsins en margar greinar hafa nýtt fyrstu æfinguna í hverjum mánuði til þessa og ætlum við að bæta við innanfélagsmóti í loftgreinum fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði.

Við hvetjum auðvitað alla til þess að taka þátt í þessum mótum bæði til þess að safna reynslu og auðvitað stofna til vinalegrar samkeppni innan félagsins.

Kveðja, Skotstjórarnir