Jón Þór Sigurðsson Skotíþróttafélagi Kópavogs, er að keppa á þessu móti. Eftir fyrri daginn (í gær) er hann í þriðja sæti með 595 stig, sem er jöfnun á Íslandsmeti sem hann á sjálfur. Þetta er mjög sterkt mót, fjórir efstu menn eru allir á 595 stigum og það munar bara þremur stigum á fyrsta og tíunda sæti.
Hægt er að fylgjast með keppninni á “results.sius.com” þarna eru allar upplýsingar um keppendur og skorið á hverja skífu.