Framkvæmdir hefjast

Eftir mikla bið eru framkvæmdirnar loksins að fara að hefjast í félagshúsnæðinu okkar.

Ákveðið hefur verið að hefja framkvæmdir á okkar hluta af húsinu þann 16. maí næstkomandi og þurfum við að vera búin að tæma alla skápa sem eru ekki inni í hvelfingunni okkar í seinasta lagi á miðvikudaginn næstkomandi, 11. maí.

Fyrirvarinn er ekki mikill en það skiptir miklu máli að við leggjum okkur fram við að klára þetta á tilsettum tíma svo framkvæmdum seinki ekki okkar vegna.

Við stefnum svo á að halda vinnudag á laugardaginn þar á eftir, 14. maí og sunnudaginn 15. maí ef þörf er á því.

Kveðja,
Stjórnin