Glæsilegur árangur á Möltu

Í gær fór fram keppni í Loftskammbyssu á Smáþjóðleikunum á Möltu og gekk skyttum SFK mjög vel.

Ívar Ragnarsson endaði efstur eftir undankeppnina með 564 stig, og endaði svo í öðru sæti í úrslitum með 227,3 stig og fer því heim með Silfrið.

Bjarki Sigfússon endaði í 4 sæti eftir undankeppnina með 548 stig, og endaði svo í 7 sæti með 122,2 stig.

Óskum við þeim innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.