Heimsókn Þjálfara frá Noregi

Seinustu helgi fengum við í heimsókn frá Noregi hana Andreu Wick til þess að kenna þjálfurunum okkar hvernig þjálfun skotíþróttamanna hefur farið fram í Noregi.

Við héldum vinnustofu þar sem farið var yfir hvernig gott er að stilla upp æfingu og hvernig við getum brotið niður “hið fullkomna skot” og sett upp æfingar með það í huga, og buðum við fulltrúum nokkurra félaga að koma og taka þátt í henni með okkur. Ekki allir gátu mætt en erum við öll sem vorum á staðnum sammála um að hafa lært mikið af þessu.

Nú eigum við bara eftir að vinna úr þessum upplýsingum og stilla upp æfingaprógrammi í framhaldinu.