Tímbundin frestun æfinga v.COVID

Vegna mikillar aukningar covid smita á höfuðborgarsvæðinu hafa Almannavarnir lýst yfir neyðarstigi. Þetta hefur óhjákvæmilega áhrif á félagið okkar og hefur stjórn ákveðið að fresta æfingum næstu þrjár vikurnar. Vonandi verður hægt að opna fyrir æfingar eftir þann tíma, en við munum láta vita á heimasíðu félagsins og á Facebook síðu félagsins.

Barna og unglingaæfingar eru undanþegnar þessum ráðstöfunum og því munum við halda slíkum æfingum áfram – en biðja foreldra að koma ekki inn með börnunum.

Stöndum saman, gætum að smitvörnum og lækkum tölu smitaðra. Vonandi klárast þetta hratt.